Velkomin til fréttamannafundar
Föstudaginn 8. janúar 2010, kl. 11.00
Listasafni Íslands, Reykjavík
Kristján Guðmundsson tók dómnefndina með trompi, nú kemur samansafn sýningarinnar Carnegie Art Award 2010 til Íslands.
Einróma dómnefnd sæmdi íslenska myndlistarmanninn Kristján Guðmundsson einum veglegustu verðlaunum veraldar. Nú heimsækir Carnegie Art Award 2010 Listasafn Íslands og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mun opna hina nýju sýningu. Kristján Guðmundsson sýnir verk sín ásamt 22 útvöldum, norrænum listamönnum, sem til samans kynna rjómann af norrænni samtímalist líðandi stundar.
Þann 17. september 2009 tók Kristján Guðmundsson móti fyrstu verðlaunum, um einni milljón sænskra króna úr hendi Hennar Hátignar, Margrethe Drottningar við hátíðlega athöfn Charlottenborg listahöllinni í Kaupmannahöfn. Þetta er í fyrsta sinn sem íslendingur hlýtur fyrstu verðlaun. Áður hafa tveir íslenskir listamenn hlotið önnur verðlaun en það eru Hreinn Friðfinnsson og Eggert Pétursson árin 2000 og 2006.
Sýningin kemur nú beint frá Kaupmannahöfn með verkum hinna 23 norrænu listamanna sem valdir voru í harðri samkeppni úr hópi 148 tilnefndra listamanna. Hinir útvöldu þátttakendur og verk þeirra gefa þverskurð af því sem efst er á baugi í norrænni samtímalist. Öll verkin eru frá síðustu tveim árum og umfang þeirra er yfirgripsmikið hvað varðar tjáningu og efnivið.
„Aldrei hefur umfangið verið stærra kringum Carnegie Art Award, hvorki af hálfu tilnefnara né listamanna,“ var haft eftir formanni dómnefndar Tuulu Arkio, menningarerindreka frá Helsinki. Af sexmanna dómnefndinni má nefna þau Gunnar J. Árnason, kennara við Listaháskóla Íslands og Iwona Blazwick, forstöðukonu Whitechapel Gallery í Lundúnum.
Í Reykjavík opnar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Carnegie Art Award 2010, áður en sýningin heldur áfram hálfs annars árs för sinni. Hún fer um allar höfuðborgir Norðurlandanna auk Lundúna, Beijing og Nice. Í Listasafni Íslands stendur sýningin til 21. febrúar 2010.
Hittið Kristján Guðmundsson, aðra listamenn og íslenska dómnefndarmeðliminn Gunnar J. Árnason á fréttamannafundi Carnegie Art Award 2010 á Listasafni Íslands, 8. janúar 2010, kl. 11.00.
Sænska listakonan Anastasia Ax flytur kraftmikinn gjörning á opnuninni sem hefst kl. 18.00 þann 8. janúar 2010. Verið velkomin.
Carnegie Art Award hefur verið stofnsett til að styðja athyglisverða samtímalistamenn á Norðurlöndunum og samstendur af sýningunni með völdum verkum, bókinni, kvikmyndinni og verðlaunum til fjögurra listamanna sem taka þátt í sýningunni. Verðlaunin eru meðal veglegustu listverðlauna í heiminum.
Verðlaunahafar ársins
Samhljóða dómnefnd sæmdi íslenska listamanninn Kristján Guðmundsson (f. 1941) fyrstu verðlaunum að upphæð ein milljón sænskar krónur. Með einstæðum hljóðdeyfandi málverkum bræðir hann saman á persónulegan hátt efniviði og hugmynd í smíðisgripi sem eru mettaðir af merkingu.
Önnur verðlaun, um 600 000 sænskar krónur féllu sænsku listakonunni Kristinu Jansson (f. 1967). Með heillandi sérstæðum og sálrænt mettuðum málverkum spyr hún spurninga um minni, skynjun og arkitektónískt rými.
Felix Gmelin (f. 1962), frá Svíþjóð, hlýtur þriðju verðlaun, um 400 000 sænskar krónur. Innsetning hans Ambiguous Gestures er margslungin heimild um persónulega sögu sem og Vínaraksjónismans frá sjöunda áratugnum, þar sem líkaminn tók við af striganum sem undirstaða málverksins.
Danska listakonan Marie Søndergaard Lolk (f. 1981) hlýtur styrkinn til ungs listamanns, um 100 000 sænskar krónur. Með flóknum verkum sínum byggðum af ótal lögum af lit rannsakar hún efniskennd málverksins.
Meðal þátttakenda í ár en íslenski listamaðurinn Egill Sæbjörnsson sem tvinnar saman tónlist, vídeó og innsetningu í einskonar tæknilegri framlengingu málverksins.
Fréttaefni
Í tengslum við fréttamannafundinn afhendist bókin „ Carnegie Art Award 2010“ þar sem listamennirnir eru kynntir og verkin á sýningunni. Bókinni fylgir einnig DVD með viðtölum við listamennina. Að auki fylgir CD-ROM með myndum í hárri upplausn af öllum verkum sýningarinnar, andlitsmyndum allra listamannanna og dómnefndarmeðlimum, auk texta sem lýsa Carnegie Art Award 2010.
Málsverður
Í lok fréttamannafundarins er boðið upp á smurbrauðsrétti.
Nánari upplysingar og myndir fyrir fjölmidla veita:
Svanfríður Franklínsdóttir, Deildarstjóri kynningar-og útgáfudeildar, simi: +354 515 9604, svanfridur@listasafn.is, Anne Folke, Safnstjóri Carnegie Art Award, simi: +46 708 86 90 96, artaward@carnegie.se
Listasafni Íslands, Laufásvegi 12, 101 Reykjavík, Island
Sýningartími: 8 janúari 2010 – 21 febrúar 2010:
Opið daglega kl. 11-17, Lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur
Þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10
www.carnegieartaward.com, www.listasafn.is